Varúð: óhófleg bjartsýni? (með spá)

Uppfært 12.maí kl.11:09:
Spá um löndin tíu sem komast áfram í kvöld:
 
Skv. því sem ég spáði á esctoday, eru þetta löndin sem komast áfram:
Bosnía
Tyrkland
Svíþjóð
Malta
Rúmenía
Ísland
Montenegro
Armenía
Sviss
Finnland
(Þetta er erfiður riðill - 60% eða meira rétt spá væri frábært!)
 
Samkvæmt svo mörgum spekingum á Ísland að labba í gegnum þessa forkeppni og hana nú! En bara svo fólk muni það, þá var Gleðibankanum spáð mjög góðu gengi og því flaggað á síðum íslenskra dagblaða (ekkert net þá). Hneykslissvipurinn verður svo mikill á fólkinu þegar okkar framlag fær ekki þá stöðu sem "það á skilið". Þetta hefur alltaf verið svona. Og bara svo þetta sé sagt á hverju ári: Charlotte hin sænska stal ekki sigrinum af Selmu 1999 ... !!
 
Skv. Eurovision spásíðu Google (www.google.com/eurovision) þá er Ísland í 33. sæti!!! Noregur hefur tekið þar forystuna og Tyrkland í öðru sæti. Við vitum það að spár og sérfræðingar hafa ekkert um niðurstöðuna að segja... eða hvað? Munu kjósendur litast af þessum spám og gefa atkvæði eftir þeim? Eða mun fólk kjósa besta lagið að sínum dómi? Hvaða áhrif munu dómnefndirnar svo hafa?
 
Eitt er víst: það er ekkert gefið að Jóhanna komist áfram og það yrði ekkert hneyksli ef hún kæmist ekki ... en fyrir landann, þá vonast ég eftir góðum árangri. Ég spáði fyrir stuttu um hvaða tíu lög kæmust áfram ... ég veit ekki hvort spá mín sé sú sama nú - en Ísland á möguleika - eins og aðrir. Nú er bara að bíða og sjá.

mbl.is Lokaæfing fyrir undanúrslitin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi Friðleifsson

Við vinnum ekki spurning 

Ómar Ingi Friðleifsson , 11.5.2009 kl. 18:57

2 Smámynd: Anna Guðný

Ég er svo róleg yfir því að við komumst ekki áfram. Þá verður það  bara: Heja Norge á þessu heimili. Hvort eða miklu flottara lag og miku líkara því sem við vildum senda út.

Hafðu það gott Doddi minn , bið að heilsa Veigu.

Anna Guðný , 11.5.2009 kl. 19:40

3 identicon

Flott hjá þér Doddi við ætlum allltaf að sigra og vera best í öllu. kveðja af Geðdeild FSA.

gustarina (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 19:46

4 identicon

Hey.. gaman að því þá var ég að skoða þessa frétt á mbl og sé ég ekki tengil inn á þína síðu? Það held ég nú.

Ég hef nú ekki verið í miklu eurovisionsambandi þessa dagana en ég held að við komumst ekki áfram.

Kveðja frá Köln

Katrín Magnús (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 19:57

5 identicon

Allt í lagi að senda ballöðu ,við höfum oft farið flatt á því að vera mjög sniðugir og poppaðir .Ljúfar ballöður standa yfirleitt fyrir sínu.Mörgum Evrópubúum líka þær betur en Íslendingar.Það er engin lífsnauðsyn að komast áfram ,bara að flutningurinn heppnist.

Hörður Halldórss (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 23:10

6 Smámynd: Doddi - Þorsteinn G. Jónsson

Ommi ... ég veit þú munt fylgjast með af miklum áhuga.

Arna ... ég man eftir þessu og var sjálfur frekar spældur í smá tíma. En þótt við höfum máske lagast þá þarf ekki lengra aftur en til 2005 þegar Selma átti nú að taka þetta með trompi og allir brjálaðir ... ásakanir um klíkuskap að austan og svo fíflaskapurinn með Silvíu Nótt árið eftir (tilviljun??) ... en með t.d. framlaginu okkar í fyrra þá minntum við á okkur. Og höfðum gaman af.

Anna ... við erum greinilega með sama uppáhaldsjúrólag ... við höfum gaman af keppninni sama hvernig fer.

gustarina... er ekki kominn tími á að við íslendingar lærum smá auðmýkt? Ég vil alltaf taka þátt því mér finnst þetta gaman ... en fyrst og fremst að taka þátt.

Kær kveðja út til þín Katrín ... vonandi er Köln að fara vel með þig.

Hörður... hvaða ballaða hefur gert það gott hjá okkur?
Hægt og hljótt = 16. sæti
Það sem enginn sér = 22. og síðasta sæti!
Heaven = 16. sæti
Nætur, Núna, Þá veistu svarið, Nína... þetta var um miðju eða fyrir neðan hana ...
Ergo: ballöður hafa EKKI verið að gera það gott.

En ég itreka það að ég er ekki að vonast endilega eftir því að komast áfram. Ég hefði viljað sjá hressara lag fara út... en það er bara ég (og einhverjir aðra). Ballöður eru jú fallegar ... en hafa ekkert "gagnast" okkur Íslendingum vel. Kannski það breytist núna... Jóhanna mun standa sig!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson, 12.5.2009 kl. 00:23

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hlakka til kvöldsins. Knús norður til ykkar

Ásdís Sigurðardóttir , 12.5.2009 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband